
Opnunarræða Agile 2008 var haldin af James Surowiki, höfundi "The Wisdom of Crowds". Eins og titillinn gefur til kynna, þá fjallaði hún um visku hópa, og getu þeirra til að leysa verkefni betur en færustu sérfræðingar í mörgum tilfellum. Hann fjallaði nokkuð um hvaða samsetning af hópum væri til þess fallin að taka góðar ákvarðanir, og hvers konar umhverfi þyrfti að vera til staðar til að styðja við slíka ferla.
Einna áhugaverðast fannst mér er að fyrirtæki eru farin að beita þessu til að leysa vandamál, og ein aðferð sem hann nefndi til þess voru svokallaðir "spámarkaðir", eða "prediction markets". Í þessu tilfelli er verið að nýta þá staðreynd að bestu formlegu aðferðir til að gera spádóm um atburð í framtíðinni, eru ekki jafn góðar og meðaltal ágiskana tiltölulega upplýsts hóps. Sem dæmi um notkun, er að spá fyrir um hvenær ákveðin vara í þróun verður tilbúin til sölu.
Einnig ræddi hann um gagnstætt fyrirbrigði, sem er þegar hópur af greindum einstaklingum geta tekið heimskulegri ákvörðun heldur en nokkur einn þeirra væri fær um sem einstaklingur. "Því meira sem þeir tala, því heimskari verða þeir". Sem dæmi um þetta talaði hann um innrásina í Svínaflóa, sem eftir á séð var heimskuleg ákvörðun í alla staði samkvæmt niðurstöðu opinberrar skoðunar á atburðarásinni sem hrinti því af stað. Undirliggjandi vandamál í þessu tilfelli er að allir aðilar sem koma að ákvörðunni eru búnir að ákveða fyrirfram hver niðurstaðan á að vera (það er, innrás skal gerð á Kúbu). Ráðið sem Surowiki gaf til að verjast þessu er að ef menn komast of fljótt að samkomulagi á fundi, þá eru menn að missa af einhverju mikilvægu, og ættu að fresta ákvörðun þar til einhver kemst að því hvað það er. Önnur leið til að orða þetta, er að til að taka góða ákvörðun, þá þarf að takast á um hlutina málefnalega. Þar getur komið að haldi að menn spili hlutverkið "lögfræðingur djöfsa" (devil's advocate) reglulega, svo lengi sem það er ekki alltaf sami aðilinn...
14.08.2008
|
Flokkur: Agile 2008 | Sprettur | Stjórnun
Höfundur: Guðlaugur Stefán Egilsson