Þau teymi sem vinna sína vinnu í sprettum/ítrunum þekkja flest svokölluð brennslurit, ekki satt?!?! Jæja, kannski ekki íslenska heitið en það sem á ensku kallast burndown chart. Þegar teymi vinna í sprettum inniheldur sprettsbackloggurinn (e. sprint backlog) sögur sem oftast eru í stærðarmældar í sögupunktum og tæknileg verk (e. technical task) sem mæld eru í ótrufluðum klukkutímum. Vaninn er að fylgjast með því hversu vel teyminu vindur fram innan spretts með því að plotta á línuriti tímana sem eftir eru miðað við dagafjölda spretts. Dæmi má sjá hér að neðan um brennslurit spretts.
Eins og sést þá má nota svona rit til að sjá, gróflega, hvort það sem teymið skuldbatt sig til að gera á áætlunarfundi sprettsins muni klárast fyrir lok sprettsins. Þessi rit eru lýsandi, auðveld í uppsetningu og viðhaldi, og segja okkur oft meira heldur en verkveggurinn okkar (e. task board). Gallinn við brennslurit sem sýna brennda klukkutíma er að þau segja okkur ekkert um hversu margar sögur teymið er búið að klára til enda. Það má náttúrulega segja að samvinna brennslurita og verkveggja ætti að nægja til að segja teyminu og hagsmunaaðilum hversu vel gengur að klára eitthvað sem verður hægt að skoða/prófa/nota í lok sprettsins. Þroskuð Agile/Scrum teymi færa sig þó oftar en ekki yfir í að mæla sögupunkta frekar en ótruflaða klukkutíma. Eitt teymi sem ég hef verið að vinna mikið með á þessu ári er að prófa sig áfram með að mæla bæði, eins og sjá má á eftirfarandi ljósmynd.
Eins og sést glöggt á þessu riti þá var teymið að klára tæknilegu verkin sín nokkuð jafnt og þétt en sögurnar sjálfar voru ekki að klárast fyrr en undir blálokin. Þetta eru mikilvægar upplýsingar sem geta sagt okkur ýmislegt um teymið og að skoða svona rit í ferlisskoðun (e. retrospective) getur hjálpað teyminu að ræða um hvernig það ætli sér að gera tilraunir til að bæta sögubrennslu sína í næsta spretti svo það sitji ekki eftir með mikið af tæknilegum verkum kláruðum en ekkert til að sýna á demói.
Hver er ykkar reynsla af brennsluritum sem þessum? Hafið þið endað uppi með fullt af tæknilegri vinnu unninni en ekkert til að sýna vörueigendunum á demóinu?
17.09.2008
|
Flokkur: Scrum | Stjórnun
Höfundur: Daði Ingólfsson