Jason Fried á Business of Software ráðstefnu


Horfði nýlega á þennan skemmtilega fyrirlestur Jason Frieds sem er einn eigenda eins af uppáhalds fyrirtækjunum mínum, 37signals.

Fyrirlesturinn hans er strúktúreraður þannig að Jason eyðir fyrri hálftímanum í að úttala sig um nokkra punkta sem honum þykja mikilvægir. Seinni hálftíminn er svo Q&A. Mæli sérstaklega með fyrri hlutanum og langar að nefna nokkra af punktunum hans og spá aðeins í þeim.

  • Skriðþungi (e. momentum). Jason segir að hjá 37signals sé öllu sem þeir þróa skipt upp í lítil verkefni sem hægt er að klára á stuttum tíma svo hægt sé að nýta skriðþunga stemmningar, spennings og vilja fólks til að klára verkefni. Fyrir mér var þetta enn einn plúsinn í kladdann fyrir ítrunarþróun Agile aðferða. Fólk finnur fyrir þessum skriðþunga, afkastar meira og klárar það til enda - sem er gott ;)
  • Út með kröfulýsingar. Það kemur þeim sem eitthvað þekkja til Spretts lítið á óvart að hér erum við algjörlega sammála Jason. Það sem ég hafði ekki heyrt áður er hvernig Jason lýsir þess konar skjölum sem já-skjölum! Það sem hann á við er að skjölum eins og kröfulýsingum er svo auðbreytt: "Já, góð hugmynd að fítus. Bætum við setningu fyrir hann í skjalið". Að bæta fítus við í skjal tekur mun minni tíma en nokkurn tíma að útfæra fítusinn í alvöru vöru! Þess vegna er svo auðvelt að segja alltaf já við hvaða hugmynd sem er þegar ekki þarf að hugsa alla leið.
  • Truflanir drepa framleiðni. Já, en þar sem ég átti bágt var þegar Jason lýsti því yfir að því minna augliti-til-augliti samneyti sem teymi hafa, því meira kæmu þau í verk! Ok, ég tel mig skilja rök hans, sem eru að skv. þeirra reynslu fer framleiðni þeirra niður þegar þeir eru of mikið á sama stað vegna þess að þeir eru sífellt að trufla hvern annan. Ég er sammála Jason að þetta sé staðreynd þegar meðlimir teymisins eru að vinna að mismunandi verkefnum, hafa allir sitt sérsvið sem enginn annar fer inn á, vinna aldrei í pörum og þurfa ekki mikla hjálp hvers annars. Mín skoðun er hins vegar sú að samhent, sjálfstýrandi teymi fólks sem vinnur að sama markmiði, í pörum (þegar við á), á sama stað og getur gengið í verk hvers annars geti orðið margfalt framleiðnara heldur en hópur einstaklinga.
  • Fókuseraðu á það sem ekki breytist. Ef við fókuserum á að gera alltaf nýjasta nýtt með vörurnar okkar missum við að miklum tækifærum til þess að gera það sem skiptir mestu máli til langframa fyrir þær. Það sem skiptir máli í vörunum okkar er það sem gerir það í dag og eftir 10 ár! Skoðiði ykkar bissness og finniði út hvað það er sem fólk mun alltaf vilja frá ykkur og fjárfestið í því, ekki bara endalausum nýjungum.
Þetta eru aðeins 4 af punktunum hans Jasons og ég ætla ekki að spá í fleirum hér en hvet ykkur aftur til að kíkja á þennan fyrirlestur.

03.11.2008 | Comments [3]
Flokkur: Stjórnun
Höfundur: Daði Ingólfsson


Agile smagile!

Er blogg um Agile, stjórnun, tækni, forritun, gæðamál, fyrirtækjarekstur og fleira sem okkur langar til að skrifa um.



Eldri færslur

<November 2008>
SunMonTueWedThuFriSat
2627282930311
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30123456

Innskráning

Sign In