"Já, Scrum lítur vel út, en hvernig eigum við að höndla allar litlu beiðnirnar um hjálp, alla eldana sem við þurfum að slökkva, í þessum sprettum?"
Þetta er ein þeirra spurninga sem oftar en ekki koma upp þegar við erum að byrja að koma teymum af stað með Scrum. Hún á líka fyllilega rétt á sér. Staðreyndin er sú að aðstæður margra teyma eru þannig að það VERÐUR að vera hægt að takast á við það sem ekki er hægt að áætla í upphafi spretts. Mörg teymi sem fara af stað með Agile aðferð, eins og Scrum, lenda nefnilega í því að allar truflanirnar vegna villna í raunumhverfi sem "þarf" að laga NÚNA, símtala frá notendum (innanhúss eða utan) sem vilja breytingar/lagfæringar, o.s.frv., gerir þeim ómögulegt að skuldbinda sig svona og standa við það.
Það eru nokkrar leiðir færar í þessu máli. Þegar ég segir færar á ég við leiðir sem hafa það að markmiði að gera teymi kleift að skuldbinda sig í upphafi spretts til þess að ná settu markmiði og notandasögum því fylgjandi og standa við það. Þær sem ég lýsi iðulega fyrir teymum sem spyrja þessarar spurningar eru
- Sérstakt slökkviliðs-teymi
- Batman hlutverkið
- Nægur slaki í spretti til að leysa óvænt mál (á við stabílli umhverfum).
Ég ætla þó bara að fara í 'Batman' hlutverkið í þessari færslu. Þess ber að geta að ég tók þessa hugmynd úr hinni stórgóðu bók Jim Shore,
The Art of Agile Development.
Batman hlutverkið

Í stuttu máli snýst þetta um að teymi ákveður að einn meðlimur þess hafi á sinni könnu að takast á við að slökkva eldana ("batman saves the day!"). Með því veitir Batman hinum í teyminu frelsi til að einblína á það sem áætlað var að gera í upphafi spretts.
Þessu er venjulega stillt þannig upp að teymismeðlimir skiptast á að gegna þessu hlutverki innan hvers spretts. Sum teymi skipta á hverjum degi, önnur nota 2 dagar/3 dagar reglu og enn önnur skipta á vikufresti. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli svo lengi sem við reynum að nota reglu sem hentar teyminu og hjálpar því að halda fókus og standa við sínar skuldbindingar.
Batman-inn í teymum sem ég hef unnið með nær yfirleitt að leysa a.m.k. 60-70% af "eldunum" án þess að trufla aðra í teyminu. Eftir því sem þekkingin í teyminu dreifist betur, því hærri verður þessi prósenta.
Hvað segið þið? Eru einhver teymi þarna úti sem nota Batman hlutverkið? Endilega kommentiði á þessa færslu um ykkar reynslu!
01.02.2009
|
Flokkur: Agile | Stjórnun
Höfundur: Daði Ingólfsson