Orkustjórnun, hljóðbækur og brákuð rif

Eitt af því besta sem gerðist fyrir mig þegar ég stofnaði Sprett með félögum mínum, var að ég lærði ýmislegt af félögum mínum um mikilvægi þess að halda áfram að læra og tileinka sér nýja þekkingu. Hluti af því er að við hlustum mikið á hljóðbækur, og hef ég núna hlustað á 18 slíkar, lang flestar með stjórnunarlega eða viðskiptatengda vinkla. Nokkrar af þessum bókum hafa haft mikil áhrif á mig, núna síðast "The Power of Full Engagement" eftir Jim Loehr og Tony Schwartz. Útgangspunktur þessarar bókar er að lykillinn að velgengni og hamingju í lífinu, sé meðvituð og góð stjórnun á nýtingu og endurnýjun á persónulegri orku, frekar heldur en tímastjórnun, sem er þessi hefðbundna sýn, og sú sem ég var alltaf að reyna að vinna eftir.

Það vildi svo til að ég lenti í því fyrir rúmum mánuði að bráka í mér rifbein. Félagi minn sem lenti í því sama ekki fyrir löngu síðan, hafði sagt mér að vika þrjú væri verst, fyrir utan fyrstu dagana, svona þegar þetta væri að skríða saman. Þetta gekk nokkuð vel eftir. Það gekk alveg þokkalega að sinna vinnu fram að því að rétt tæpum þrem vikum eftir brotið var ég farinn að vera verulega þreyttur, og kom að því að ég entist ekki nema hálfan daginn, og varð að fara heim, alveg búinn á því. Það vildi svo til að þennan dag byrjaði ég á því að hlusta á þessa bók.

Eitt af því sem þeir segja í þessari bók, sem er augljós sannleikur þegar maður heyrir hann, en greinilega eitthvað sem menn eiga auðvelt með að gleyma, er að við fáum orku okkar úr tveimur áttum. Matur og drykkur sem við borðum, og súrefni sem við öndum að okkur. Það er þetta síðara sem við tökum sem of sjálfsögðum hlut, og hugsum nánast aldrei út í. Þetta fékk mig til að hugleiða stöðuna sem ég var í, örþreyttur að fara heim um miðjan dag, þó lógískt séð ætti ég í raun að vera í betra standi heldur en vikuna á undan. Ég ákvað því að gera tilraun á mér, og gera öndunaræfingar eins og lýst er í þessari bók, það sem eftir var dags og næsta dag. Og árangurinn var mjög dramatískur. Ekki eingöngu entist ég til 7 daginn eftir á löngum og ströngum degi, heldur bar ekkert á þreytueinkennum eftir þetta.

Málið þarna er nokkuð augljóslega það að sársauki vegna rifbeinsbrots verður til þess að maður andar grynnra heldur en eðlilegt er, sem veldur síðan orkuleysi og þreytu. Um leið og maður gerir sér grein fyrir vandamálinu, og gerir einfaldar öndunaræfingar nokkrum sinnum á dag (anda djúpt að sér og hægt frá, endurtaka 2-3 sinnum á einni mínútu), þá hverfur vandamálið. Árangurinn við ofangreindar aðstæður er mjög dramatískur, og það gæti orðið mín heppni því ég mun aldrei gleyma þessu. Árangurinn fyrir fullfrískt fólk er umtalsverður líka, bara af því að anda meðvitað.

Fyrir utan þetta hef ég reynt að fara eftir öðrum ráðleggingum í þessari bók varðandi mataræði, öndun, líkamlega og andlega þjálfun og hvíld, og ég held að ég leyfi mér að segja að orkustigið hjá mér og vilji og löngun til allra verka sé nú þegar (2 vikum síðar) orðinn hærri heldur hann hefur verið í mörg ár. Ég rek það að mestu leyti til lestur þessarar bókar, og hvet ég því alla sem ég hitti núna til að lesa þessa bók. Það er að vísu stutt síðan ég las hana, en árangurinn hingað til lofar það góðu, að ég býst fastlega við að þessa bók muni ég í framtíðinni álíta sem þá af þessum bókum hér að neðan, sem mest hafði áhrif á mig.

- Guðlaugur Egilsson

Til gamans er hérna topp 10 listinn minn af hljóðbókum sem ég hef hlustað á:

  1. The Power of Full Engagement         Jim Loehr and Tony Schwartz  
  2. How We Decide (Unabridged) Part 1     Jonah Lehrer
  3. The 7 Habits of Highly Effective People (Unabridged), Part 1     Stephen R. Covey
  4. The Future of Management (Unabridged)     Gary Hamel, Bill Breen
  5. Outliers (Unabridged)     Malcolm Gladwell
  6. Beyond the Goal (Unabridged)     Eliyahu M. Goldratt
  7. Getting Things Done (Unabridged)     David Allen
  8. How to Win Friends & Influence People (Unabridged)     Dale Carnegie
  9. Tuned In (Unabridged)     Craig Stull, Phil Myers, David Meerman Scott
  10. The 8th Habit (Unabridged), Part 1     Stephen R. Covey


Aðrar hljóðbækur sem ég hef hlustað á (óraðað):

  • Rethink (Unabridged)     Ric Merrifield
  • What Got You Here Won't Get You There (Unabridged), Part 1     Marshall Goldsmith and Mark Reiter
  • Dumb Money (Unabridged)     Daniel Gross
  • The Audacity of Hope     Barack Obama
  • Crucial Conversations     Kerry Patterson, Joseph Grenny, Ron McMillan, and Al Switzler
  • Lean Solutions     James P. Womack and Daniel T. Jones
  • Made to Stick (Unabridged)     Chip Heath and Dan Heath
  • The E-Myth Revisited (Unabridged)     Michael E. Gerber

17.10.2009 | Comments [0]
Flokkur:
Höfundur: Guðlaugur Stefán Egilsson

All comments require the approval of the site owner before being displayed.
Name
E-mail
Home page

Comment (Some html is allowed: a@href@title, b, blockquote@cite, em, i, strike, strong, sub, sup, u) where the @ means "attribute." For example, you can use <a href="" title=""> or <blockquote cite="Scott">.  

Enter the code shown (prevents robots):

Live Comment Preview

Agile smagile!

Er blogg um Agile, stjórnun, tækni, forritun, gæðamál, fyrirtækjarekstur og fleira sem okkur langar til að skrifa um.



Eldri færslur

<July 2010>
SunMonTueWedThuFriSat
27282930123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
1234567

Innskráning

Sign In