Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ég berst á fáki fráum fram um veg. Mót fjallahlíðum háum hleypi ég. Og golan kyssir kinn. Og á harða, harða spretti hendist áfram klárinn minn. Það er sem fjöllin fljúgi móti mér; sem kólfur loftið kljúfi klárinn fer, og lund mín er svo létt, eins og gæti ég gjörvalt lífið geysað fram í einum sprett. Hve fjör í æðar færist fáknum með! Hve hjartað léttar hrærist! Hlær við geð, að finna fjörtök stinn! Þú ert mesti gæðagammur, góði Léttir, klárinn minn! Hve hátt hann lyftir hnakka, hvessir brá, og hringar hreykinn makka. Horfið á! Sko, faxið flaxast til! Grundin undir syngur söngva slétt við Léttis hófaspil. En læg nú sprettinn, Léttir, líttu á, við eigum brekku eftir, hún er há. Nú ægjum við fyrst ögn áður söng og hófa hljóði förum rjúfa fjallaþögn.
06.07.2008 | Comments [3] Flokkur: Sprettur Höfundur: Pétur Orri Sæmundsen
Remember Me
a@href@title, b, blockquote@cite, em, i, strike, strong, sub, sup, u
Er blogg um Agile, stjórnun, tækni, forritun, gæðamál, fyrirtækjarekstur og fleira sem okkur langar til að skrifa um.
Sign In