Beint í leiðarkerfi vefsins.
Undanfarið þegar ég hef verið að þjálfa teymi í að nota ferlisskoðanir til að bæta vinnuferli sitt hef ég meira og meira verið að hjálpa þeim að setja niður hugmyndir sínar á forminu:
Tökum dæmi um of víðtæka aðgerð:
"Förum að skrifa sjálfvirk einingapróf áður en við skrifum kóða (TDD)".
Þar sem þessi aðgerð gerir ráð fyrir að allir í teyminu fari af stað með TDD í einu nær hún ekki settu marki vegna þess að fólki fallast hendur. Of víðtækar aðgerðir eins og þessi eru ekki framkvæmdar og það var það sem var að gerast hjá sumum teymanna. Í staðinn var eitthvað annað gert sem tók stuttan tíma en hafði ekki eins mikil langtíma jákvæð áhrif á vinnuferlið. Hugmyndina fékk ég að láni frá Bas Vodde.
Þegar þetta par langtíma markmið/skammtíma aðgerð er notað getum við farið að búta mikilvægar betrumbætur niður í viðráðanlegar aðgerðir. Ef við höldum áfram með dæmið að ofan þá lítur sú aðgerð meira út eins og langtíma markmið:
Þetta vekur hins vegar upp spurningar um hvort það sé markmið út af fyrir sig að nota TDD!?! Höfuðmarkmiðið er náttúrulega það að gera teymið betra og betra við það sem það er að fást. Það hvernig höfuðmarkmiðið og markmiðið í dæminu okkar tengist langar mig að fara betur yfir í annarri færslu. Framhald síðar...
08.12.2008 | Comments [3] Flokkur: Ferlisskoðanir Höfundur: Daði Ingólfsson
Remember Me
a@href@title, b, blockquote@cite, em, i, strike, strong, sub, sup, u
Er blogg um Agile, stjórnun, tækni, forritun, gæðamál, fyrirtækjarekstur og fleira sem okkur langar til að skrifa um.
Sign In